Útbúnaður

Skór og fatnaður
Nauðsynlegt er að koma í góðum útiskóm. Klæðið ykkur eftir veðri. Mætið með hanska og húfur en mikið er spurt um að fá slíkan fatnað lánaðan.

Hlífðargalli
Allir leikmenn fá léttan hlífðargalla utan yfir eigin fatnað. 
 
Hlífðargrímur
Öllum leikmönnum ber skylda til að vera með hlífðargrímur sem verja andlit og eyru. Enginn má spila leikinn eða vera á leiksvæðinu án hennar. Grímurnar eru léttar, stillanlegar, með góðum glerjum og svömpum. 

Hlífðarhetta og hanskar
Allir leikmenn fá hlífðarhettur og hanska.
 
Merkjarar
Í litbolta eru notaðir svokallaðir merkjarar (markers).  Merkjarar eru ekki ólíkir byssum í útliti en hlaupin á þeim eru sverari og þeri eru léttari. Aftan á merkjurunum eru loftflöskur fylltar af lofti. Merkjararnir eru stilltir af þannig að hraði kúlnanna fari eftir settum viðmiðunum. 
 
Merkin (kúlurnar)
Kúlurnar eru eingöngu unnar úr náttúrulegum efnum og eru að mestu framleiddar úr vatni og matarlit. Liturinn í þeim næst með blöndu litarefna og þær eru gjarnan framleiddar af sömu aðilum og framleiða mat og snyrtivörur. Kúlurnar springa um leið og þær snerta harðan hlut, merkja viðkomandi með litaklessu og sá leikmaður verður þar með úr leik. Merkin eða litakúlurnar eru til í öllum regnbogans litum og litinn er auðveldlega hægt að þvo úr fötum þar sem innihald kúlnanna er úr náttúrulegum efnum. Kúlurnar byrja að samlagast náttúrunni strax að leik loknum.
 

t

Hlífðargalli

 

 

 

 

 

Gríma

 

 

 

 

 

 Hetta

Tippmann Merkjari

 

 

 

Paintball kúlur