.

Reglur í Paintball

 

Svæðisreglur
 
  • Leikmenn verða alltaf að bera hlífðargrímur inni á leikvellinum
  • Ekki má skjóta á leikmann sem ber ekki hlífðargrímu inni á leikvellinum
  • Ekki má skjóta andstæðinginn viljandi fyrir ofan hálsmál
  • Merkibyssurnar skulu vera í þar til gerðum upphengjum á hvíldarsvæði
  • Engin líkamleg snerting er leyfileg
  • Alltaf skal hlusta á og fara eftir tilmælum leiðbeinanda (Marshall)
  • Aldrei skal setja aðra hluti en þá sem eru til þess ætlaðir í merkibyssurnar
  • Hafið samband við leiðbeinanda ef móða myndast í hlífðargrímum og hann mun aðstoða ykkur. Aldrei má að taka af sér grímuna nema að beiðni leiðbeinanda
  • Áfengi og önnur vímuefni eru stranglega bönnuð á leiksvæðinu
 
Leikreglur
 
  • Í byrjun leiks færðu litað armband. Ekki má skipta um armband nema að beiðni leiðbeinanda.
  • Armböndin eiga að vera vel sjáanleg og vera staðsett á upphandlegg.
  • Leikmaður er úr leik ef hann merkist á einhvers staðar á líkama eða búnaði. Leikmaður er einungis úr leik ef litboltinn springur og litar viðkomandi með litarefni.
  • Leikmaður er enn með í leik hann er skotfæralaus eða ef bilunar gætir í tækjabúnaði. Það er á ábyrgð leikmannsins að finna leiðbeinanda án þess að verða merktur. Einu skiptin sem ekki má skjóta á leikmenn er þegar meiðsli koma upp eða þegar leikmaður þarf hjálp vegna andlitsgrímu.
  • Leiðbeinandi dæmir um það hvort annað liðið hefur náð sigri.
  • Leikmaður sem nær flaggi andstæðingsins má ekki afhenda það öðrum leikmanni.
  • Leikmenn þurfa að vera á sínum stað þar til leiðbeinandi gefur merki um að leikur sé hafinn.
  • Ekki skal nota móðgandi eða neikvætt orðalag inn á leikvellinum. Leikmenn skulu spila heiðarlega og sýna íþróttamannslega framkomu í hvívetna.
  • Reykingar eru bannaðar inni á leikvellinum.
  • Leikmenn sem brjóta leikreglur eða hegða sér óskynsamlega, þurfa að yfirgefa leiksvæðið.