Litbolti (Paintball) er skemmtilegur leikur fyrir alla og einstaklega fjörug leið til að byggja upp liðsheild og efla liðsandann. Spilaðir eru skemmtilegir leikir á stórum útivöllum og auðveldar þrautir leystar af hópnum sem ein heild. Ærslagangur í bland við einfalda keppni er hin fullkomna uppskrift að góðum degi.
Fyrirkomulag
Hópstjórar okkar taka á móti hópnum ykkar, skipta honum upp í lið og setja upp leikina fyrir ykkur. Við höldum þétt utan um hópinn þinn frá upphafi til enda.
Spilaðir eru leikir eins og:
Kill the Captain
Enemy Flag
Elimination
Rob the Bank
Treasure Hunt
Í litbolta reynir á rökhugsun, snögga ákvörðunartöku, traust, samvinnu og forystuhæfni til að ná settu marki. Í upphafi er farið yfir hvern leik og hann útskýrður fyrir leikmönnum. Spiluð eru nokkur mismunandi leikkerfi t.d. að ná og koma upp fána á sem stystum tíma og leystar þrautir.
Litbolti þykir henta vel sem hluti af hópefli fyrirtækja og hópa til að ná settum markmiðum undir öðruvísi kringumstæðum en á vinnustað.
Litboltarnir sem við notum eru úr sama innihaldsefni og Gúmmíbirnir (samt ekki jafn bragðgóðir !)
