

Fjársjóðsleitin: Þið siglið af stað í ævintýrasiglingu í sjóræningjalandið, lendið á eyðieyju, farið í gegnum kletta, lendið inn í sjóræningjaþorpi, spilið upp og niður þrautabrautir, í gegnum bátsflök, yfir brýr, rekist á hvali og risastórt sjóræningjaskip. Að lokum finnið þið vonandi fjársjóðskisturnar. Ævintýraferð sem enginn gleymir. Stærð: 18 holur.
