.

Góð ráð í Paintball

Fyrsta ráðið er að vera alltaf með grímuna á sér, hvað sem á dynur. Litboltarnir skjótast úr hlaupinu á miklum hraða og geta valdið alvarlegum skaða ef þeir lenda í augum leikmanna.

Fátt er verra en að verða kúlulaus inni á velli. Vertu alltaf með nóg af kúlum á þér meðan á leik stendur. Notaðu pásurnar til að bæta við þig aukaskotum.

Spilið leikinn sem lið en ekki sem einstaklingar, ekki reyna að sigra allt hitt liðið upp á þitt einsdæmi.

Fyrir leiki er best að skipuleggja hverjir eiga að sækja og hverjir eiga að verja.

Reyndu að láta hitt liðið ekki vita hvar þú ert staðsettur á vellinum.

Reyndi að staðsetja andstæðingana inni á vellinum ef þeir eru að kalla sín á milli - þannig ertu skrefi á undan þeim.

Reyndu að fela allt sem glansar eða er áberandi, sérstaklega ef sólin skín.

Vertu ósýnileg/ur, líka þegar þú ert að skjóta á andstæðinginn.

Best er að sækja fram með því að skjóta hratt á andstæðinginn þannig að hann geti ekki staðið á fætur og svarað skothríðinni.

Hreyfðu þig oft og stutt í einu, vertu sem mest í skjóli.

Ekki láta hræðsluna ná tökum á þér, þú verður að vera á varðbergi, tilbúin/n, varkár, sniðug/ur, skapandi og óttalaus.

Ef þú hikar eða lætur hræðsluna ná tökum á þér muntu tapa leiknum.

Það lið sem spilar sem ein heild og hefur góð samskipti sín á milli meðan á leik stendur mun standa uppi sem sigurvegari.