Þið sláið á þráðinn og við mætum til ykkar með flottustu lazertag græjurnar á markaðnum í dag; ljósaróbóta og mist-vélar, allt eftir ykkar óskum og aðstæðum.
Í sameiningu hönnum við svo spennandi spilavelli á þeim stöðum í fyrirtækinu sem henta og setjum upp einfalda, skemmtilega og æsispennandi leiki sem allir geta tekið þátt í.